Klukkan

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir
  • Stađur: Hvolsvöllur
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Fulltrúi
  • Hjúskaparstađa: Einhleyp

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Lífiđ gengur áfram

29. október 2008 klukkan 14:43

Það er ótrúlegt hvað tíminn líður hratt áfram. Mér finnst bara vera mánudagur og svo áður en ég veit af er kominn föstudagur! Það er reyndar til alveg ágæt skýring á þessu og hún er sú að ég sjálf hef mjög mikið að gera fyrir utan vinnuna. Ég er í söngtímum hjá Laufeyju sem eru virkilega að skila sér að mér finnst. Svo er ég auðvitað alltaf að þjálfa hestana mína og frá Hólmari. Síðan þarf víst líka að járna hestana yfir á skaflaskeifur núna og hef ég verið að dunda við það undanfarið.

Um seinustu helgi fórum við pabbi með þrjú hross til Reykjavíkur og gekk ferðin mjög vel miðað við veður og færð. Seinni partinn sama dag náðum við Valur í Dropa, Maístjörnu, XX, Hátíð og XY. Fljótlega verður birt mynd af XY og nafnið hans gefið upp.

Á sunnudeginum þurfti að smala fé en pabbi átti að láta í sláturhús fljótlega eftir helgina og var því tíminn nýttur á meðan allir voru heima að færa til og gera klárt.

Ég er að verða búin að jafna mig eftir þvottasnúruferðina en um daginn henti Neisti mér af og skildi mig eftir sem þvott á girðingu. Ég var heppin að það var enginn gaddavír á girðingunni en ég var og er enn illa marin og bólgin.

Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir
Engin athugasemd

Nćg verkefni

17. október 2008 klukkan 12:16
Það er alltaf nóg að gera í vinnunni. Ég mæti klukkan átta og er oft aðeins fram eftir en hef aldrei verið lengur en til sjö. Oftast búin á milli fimm og sex. Síðan hef ég mætt í hesthúsið eftir það og þjálfað tvo til þrjá hesta. Ég hef sett Neista í smá pásu og ætla svo að byrja alveg frá grunni með hann til þess að ná að losna við þessa viðkvæmni í honum. Hann er mjög stífur í gegnum sig og ég þarf að vinna vel í honum til þess að hann verði tilbúin í þau verkefni sem ég ætla að fela honum eftir áramótin.

Ég er búin að vera í söngtímum hjá Laufey og finnst það alltaf jafngaman. Mér finnst ég vera betri manneskja þegar ég kem úr tímum hjá henni og með meira sjálfsöryggi.

Svo hef ég aðeins verið að járna hross fyrir aðra en samt ekki mikið. Ég hef svo margt annað að gera. Smalaði um daginn með Svenna fé þar sem hann var að fara slátra og svo elti ég nokkrar rollur frá Eyvík sem voru inni á landinu hans Svenna. Þannig að Vestri greyið er búin að fá meira en nóg af leiðinni að Brjánsstöðum.

Hlakka svo til að geta farið að einbeita mér meira að hestamennskunni. Ég gæli reyndar við það að fara út til Þýskalands að vinna en eins og staðan er í dag, gagnvart þjóðfélaginu að þá held ég að það borgi sig hreinlega ekki.

Annars er ég svo búin á því um klukkan tíu á kvöldin að ég sofna vært og sef til klukkan sjö. Verð bara vör við kisa ef hann er á ferðinni en breiði þá bara fyir hann og þá sofum við vært til morguns.
Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir
Engin athugasemd

Loksins

04. október 2008 klukkan 08:40

 Loksins, loksins nenni ég að blogga eða réttara sagt hef tíma til þess. Ég er búin að vera vinna í mánuð hjá SS á Selfossi og þar er búið að vera heilmikið fjör. Það byrjaði reyndar mjög rólega þar sem slæmar heimtur voru á fé til slátrunar en eftir miðjan mánuðinn fór allt á fullt. Þá er ég að vinna meira en mína venjulegu átta tíma. Það er mikið að skemmtulegu fólki að vinna í SS og svo kemur auðvita fullt af fólki erlendis frá sem er bara að vinna í sláturtíðinni s.s. frá Finnlandi, Eistlandi, Svíþjóð, Nýja-Sjálandi og Póllandi.

Af hestamennskunni er það að frétta að þar síðustu helgi var Vestri minn, mjög bólgin á hækil og niður á legginn. Í ljós kom að hann hafði verið sleginn! Ég varð að kalla til dýralækni þar sem bólgan hjaðnaði ekki mikið til að byrja með og var hiti í þessu. Hann fékk sprautu og eftir viku var hann orðinn jafngóður og áður.

Ég á í smá vandræðum með Neista en hann er allur stífur og þegar ég geri með honum fimiæfingar verður hann alveg stífur í gegnum sig og leggst á beislið. Hann er mjög viðkvæmur og ég held að ég þurfi að byrja alveg upp á nýtt með hann og byrja á því að afstressa hann. Er búin að setja það sem markmið að geta stillt honum upp fyrir Svellkaldar konur á næsta ári en mótið er yfirleitt í kringum mars að mig minnir.

 

Svo má ekki að gleyma að ég er búin að vera lasin með hita, kvef og eyrnabólgu. Ég þurfti að vera heima þriðjudag og miðvikudag og svaf báða dagana. Amma pantaði tíma fyrir mig hjá lækni í Laugarási og eftir það viðtal fór ég á sýklalyf. Er loksins að verða góð.

Í gær þegar ég vaknaði var allt á kafi í snjó. Ég þurfti að skafa bílin og keyrði svo mjög hægt niður á Selfoss svo ég myndi nú ekki skauta út af eða eitthvað álíka. Reyndar fór ég heilan hring í hringtorginu hjá bílasölunni á Selfossi og fannst það ekkert sniðugt en var heppin að reka mig ekki utan í neitt


Núna á eftir er ég svo að fara heim í sveitina. Ragnar Bjarki er heima og við pabbi þurfum að færa hrossin til þar sem þau eru að verða haglaus.

Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir
Engin athugasemd

Hvanneyri - Álftaver

09. september 2008 klukkan 12:21
Þá er viðburðarmikilli helgi lokið. Við Stína náðum að fara snemma heim á föstudeginum og því dreif ég mig út í hesthús á Minni-Borg og þjálfaði hestana mína auk hestsins frá Hólmari. Ég var komin frekar snemma heim á Brjánsstaði og hafði það nokkuð gott en fór samt snemma að sofa.

Á laugardeginum vaknaði ég eldsnemma eða klukkan hálf sex og lagði fljótlega af stað að Minni-Borg. Rétt fyrir sex kom svo Líney frá Fellskoti og tók mig og Vestra með en við vorum að fara á námsskeið upp á Mið-Fossum sem var á vegum Endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri. Við fórum í stöðumat með hrossin okkar og síðan var okkur skipt upp í hópa eftir getu. Það var gífurlegur munur á milli margra. Sumir voru greinilega nýbyrjaðir í hestamennsku á meðan aðrir voru kannski nokkuð vanir en ekki komið með hest við hæfi fyrir námsskeiðið.
Reynir þurfti að lesa prógrammið fyrir flesta en þegar kom að mér. Bað ég Reyni um að lesa ekki og gekk okkur Vestra bara ljómandi vel að gera prógrammið. Þegar við höfðum svo lokið verkefninu og ég hneigt mig. Sagði Reynir að þetta hefði verið ljómandi vel gert og allir klöppuðu fyrir okkur Vestra. Ég roðnaði bara og vissi ekkert hvað ég ætti að segja eða gera.

Ég kom í Grímsnesið aftur um kvöldmatarleytið og fór mjög snemma að sofa. Ég vaknaði reynar svo löngu fyrir sjö og skildi bara ekkert í því af hverju ég gæti ekki sofið lengur.
Dreif bara út í hesthús og vann í hendi með bæði Neista og Sleipni en Vestri fékk frí. Ég er að vinna í stressinu hjá Neista en hann er voðalega viðbrigðin og hræddur við allar hreyfingar og hljóð.

Um ellefu leytið lagði ég að stað austur á leið og kom við heima hjá Distu en við vorum að fara í Álftaver að járna fyrir Gullu. Við komum við heima hjá mér og hittum foreldra mína, Ragnar Bjarka, Val og Þráinn. Síðan héldum við áfram leið okkar.
Þegar í Álftaver var komið fórum við strax í það að járna og gekk það bara nokkuð vel. Dóttir Gullu var að fara á fjall á öðrum hestinum og svo þurfti að skóa hestinn hennar Gullu upp til þess að hún gæti farið í réttirnar.

Ég er frekar þreytt eftir helgina en helgin var samt virkilega góð.

Í dag þriðjudag er ég svo að fara í bæin eftir vinnu á kóræfingu hjá Laugarneskirkjukórnum en svo í næstu viku byrja söngtímar hjá Laufeyju og hlakkar mig virkilega mikið til.
Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir
1 athugasemd

Árnesţing

05. september 2008 klukkan 13:21
Já, maður er víst komin á nýjan vinnustað á Selfossi. Byrjaði að vinna þar eftir hádegi á mándaginn 1. september. Hér er oft mikið að gera og á eftir að aukast ennþá meira. Sláturtíðin er víst bara rétt að byrja og stendur alla vega yfir fram í miðjan nóvember.

Ég er flutt til ömmu og Svenna upp á Brjánsstöðum. Það er voðalega gott að vera þar. Ég tók með mér tvo hesta úr sveitinni. Þá Neista og Vestra en þeir eru eins og einhverjir vita stórir og myndarlegir bræður. Þyrfti að fara taka myndir af þeim og kannski mér líka með Glottandi

Annars hef ég verið að hjálpa Svenna svolítið. Á mánudaginn þurftum við Vestri að smala sauðfé frá Eyvík og GHar sem voru inni á túni hjá Svenna. Það tók alveg upp undir tvo tíma.
Svo í gær, fimmtudag eltum við kvígur en ekkert gekk. Svo Vestri greyið var sóttur og hjálpaði okkur við smalamennskuna. Þá líka hljóp kvígan sem átti að fara inn og var að bera, beint inn svo þetta gekk upp hjá okkur.

Um helgina er svo ýmislegt að fara ske en betur um það eftir helgi.
Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir
Engin athugasemd

Kátína frá Stóra-Dal

20. ágúst 2008 klukkan 15:50
Felld hefur verið ein af stofnhryssunum í Stóra-Dal.
Kátína, jarpskjótt að lit, fæddist 1984 að Minni-Borg í Grímsnesi og flutti þaðan með okkur í Stóra-Dal þar sem hún hefur alist upp og dvalið alla tíð síðan. Hún var taminn af pabba mínum og Jökli Guðmundssyni. Hún steig aldrei brokkspor, öskuviljug, mikið brokk og skeið. Hún var alla tíð mjög sérstök persóna. Hún lét ekki ná sér auðveldlega og þegar pabbi reyndi að ná henni, setti hún alltaf rassinn í hann.
Ég gat hins vegar labbað að henni hvar sem var og sótt hana. Hún var alla tíð mín og lengi vel átti ég líka bróður hennar Feng frá Austurey sem var hesturinn sem ég lærði alla mína hestamennsku á.

Kátína var undan Frey 931 frá Akureyi og Brött frá Austurey I. MF var Þeyr frá Laugarvatni.

Undan Kátínu hafa komið 15 afkvæmi.

1) Hetta frá Stóra-Dal f. 1987, jarpskjótt undan Sporði frá Stóra-Dal. Drapst
    1.a) Freysting frá Stóra-Dal f. 1991, jarpstjörnótt. Faðir Glóblesi frá Neistastöðum. Seld til Svíþjóðar
    1.b) Mánadís frá Stóra-Dal f. 1995, brúnstjörnótt. Faðir Sproti frá Hæli.
2) Neisti frá Stóra-Dal f. 1991, jarpstjörnóttur. Faðir Glóblesi frá Neistastöðum. Seldur til Svíþjóðar.
3) Hátíð frá Stóra-Dal f. 1992, rauðskjótt, blesótt. Faðir Amor frá Keldudal. Drapst. um sumarið.
4) Leistur frá Stóra-Dal f. 1993, brúnn m/leistóttur. Faðir Vákur frá Brattholti. Seldur til Svíþjóðar.
5) Hátíð frá Stóra-Dal f. 1994, rauðskjótt, blesótt. Faðir Leistur frá Austurey I.
    5.a) XX frá Stóra-Dal f.2008, jarpskjóttur, blesóttur m/ægishjálm. Faðir er Þristur frá Feti og móðir Hátíð.
6) Fengur frá Stóra-Dal f. 1996, jarplitföróttur. Faðir Þinur frá Nýja-Bæ. Felldur
7) Fluga frá Stóra-Dal f. 1999, brúnstjörnótt. Faðir Fleygur frá Stóra-Dal. Seld til Svíþjóðar.
8) Freyja frá Stóra-Dal f. 2000, brúnstjörnótt. Faðir Fleygur frá Stóra-Dal. Felld.
9) Náttfaradís frá Stóra-Dal f. 2001, brún. Faðir Fleygur frá Stóra-Dal. Felld.
10) Brött frá Stóra-Dal f. 2002, rauðskjótt, blesótt. Faðir Dropi frá Stóra-Dal.
11) Fáfnir frá Stóra-Dal f. 2003, rauðskjóttur, blesóttur. Faðir Dropi frá Stóra-Dal.
12) Náttfari frá Stóra-Dal f. 20004, brúnstjörnóttur. Faðir Dropi frá Stóra-Dal.
13) Hylling frá Stóra-Dal f. 2005, rauðskjótt, blesótt. Faðir Dropi frá Stóra-Dal.
14) Sjóður frá Stóra-Dal f. 2006, jarpur. Faðir Dropi frá Stóra-Dal.
15) Þór frá Stóra-Dal f. 2007, jarpstjörnóttur. Faðir Dropi frá Stóra-Dal.
Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir
3 athugasemdir

Helgin 8.-10. ágúst

11. ágúst 2008 klukkan 09:19
Eftir vinnu á föstudaginn kíkti ég á Distu niður í hesthús. Þar var spjallað og svo voru klárarnir hennar reknir inn og Hendrix beislaður. Ég ætlaði að hjálpa henni af stað með hann. Ég byrjaði á því að vinna með hann við hendi og fann þá strax út að hesturinn var virkilega hræddur við pískinn. Ég lagði mig fram við að sýna honum að pískurinn er ekki hættulegur heldur gæti líka verið umbun og hrós.
Því næst fór ég á bak honum og gekk það bara nokkuð vel. Með tíð og tíma verður þetta virkilega góður hestur.

Eftir að heim var komið, náði ég í Mána út í gerði, lagði á hann og fór í reiðtúr. Á heimleiðinni komum við heim með beljurnar og ég bæði náði að opna og loka hliðinu á baki. Svo er ég líka búin að kenna Mána að fara beint upp á stökk af feti. Hann tekur bæði stökkin svo hann er ekki eins mikið missterkur eins og hann var í upphafi.

Laugardaginn 9. ágúst.
Byrjaði daginn á því að fara með kýrnar. Því næst setti ég hrossin inn. Strax eftir hádegið fór ég á Brött, Blæ og Náttfara. Því næst járnaði ég Vestra að aftan þar sem hann kom bara heim á þremur skeifum. Eftir kaffið lagði ég af stað Stóru-merkurhringinn og hafði með mér, Mána, Neista, Stjörnudís og Vestra. Allt gekk vel þangað til kom að Brú en þaðan hafði ég hugsað mér að reka hrossin heim. Ekki vildi betur til en Neisti og Vestri tóku á rás og hlupu upp Eyvindarholtsveginn og þar upp fyrir ræsin. Máni var nú ekki alveg að ná að fylgja þeim eftir en fyrir rest komumst við fyrir hrossin og héldum af stað, heim á leið.

Sunnudagurinn 10. ágúst
Strax eftir hádegið fór ég og náði í Kátínu upp í Eyvindarholt. Hún fylgdi mér eftir þar sem ég teymdi hana heim á leið á múl. Svo ákvað ég bara að skella mér á bak. Tengdi tauminn beggja vegna í múlinn og hoppaði svo á bak. Þannig reið ég heim á leið. Samt er það ótrúlegt að 24 vetra meri skuli ennþá vera í fullu fjöri en hún setti upp kryppu og var alveg tilbúin að henda mér af, ef ég hagaði mér ekki vel. Heim komust við. Ég stoppaði reyndar við ristahliðið og veiddi þar út úr hólfinu Rest en hún og Kátína eiga að fara í dag. Yfir móðuna miklu. Meira verður skrifað um Kátínu seinna.

Rétt um tvöleytið kom Dista, vinkona mín og saman fórum við ríðandi inn Mjóadal og þar eins langt og við komust. Síðan löbbuðum við niður að Syðstu-Mörk og héldum svo þaðan ríðandi heim. Ég var á Neista en hún á bróður hans, Vestra.

Ég var alveg búin á því í gærkvöldi, svo ég sofnaði snemma.
Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir
Engin athugasemd

Rigning

01. ágúst 2008 klukkan 10:34

Eftir frekar rólegan vinnudag, ákvað ég að halda heim á leið. Þegar út í bíl var komið fattaði ég allt í einu að ég væri að gleyma innmatnum fyrir mömmu. Hljóp inn og náði að redda því.

Eftir að heim var komið, fór ég fljótlega að setja inn hrossin. það var rigning svo ég var ekki búin að ákveða hvort ég ætlaði í reiðtúr. Skrapp út í hlöðu og náði í hey sem beljurnar vildu ekki en hrossin átu með bestu list. Því næst aftur út í fjós, setti mjaltaskolið á og setti inn þrjár beljur sem eru heimavið.

Þá ákvað ég að fara á hestbak og fyrstur fyrir valinu var Máni. Það er svo skrítið hvernig álit og áhugi á hesti getur breyst á milli ára. Hingað til hef ég ekki þolað þennan hest. Finnst hann allt of hægfara og erfitt að láta hann tölta. Ég ákvað í upphafi sumars að nota hann til þess að æfa ásetur þar sem hann er mjög öruggur á brokki.
Ég kenndi honum að bakka, bæði við hendi og á baki. Stoppa með hálsbandi og stoppa við þrýsting frá hnjám. Svo hef ég unnið mikið með beislið og finnst þetta bara allt annar hestur. Fór í mjög góðan reiðtúr á honum í gær þar sem hann svaraði öllu því sem ég bað hann um. Ég hef verið að kenna honum að þegar ég segi "essss = stökk" að þá eigi hann að fara á stökk. Það gengur bara orðið nokkuð vel. Þar sem allt gekk vel. Rigningin farin að aukast og við á heimleið. Ákvað ég að taka bara beljurnar með mér heim. Ég náði að opna hliðið hjá beljunum án þess að fara af baki og svo bara hottaði ég þeim af stað með hjálp frá Trítli. Beljunum fannst þetta skrítið farartæki hjá mér en létu sig hafa það að rölta heim á leið.
Allt gekk upp og kýrnar komust alla leið heim í hús og við Máni orðin alveg hundblaut.

Því næst valdi ég Stjörnudís. Hjá henni þarf ég virkilega að einbeita mér að því að hún noti báðar hliðar jafnt. Hún vill helst vera skökk en ég finn bara hvað hún er virkilega missterk. Of sterk öðru megin. Hún er alltof feit og því gengur henni mjög illa að stökkva og lendir helst bara á kýrstökki sem er ekki neitt sérlega þægilegt að sitja. Svo er hún skeiðbundin en með smá ásetu og þyngdarbreytingu þá gengur mjög vel að hjálpa henni yfir á brokk aftur.

Endaði á því að fara á Blæ. Það hefur gengið mjög vel með Blæ hingað til nema um daginn þegar mamma kveikti á rygsugunni á svipuðum tíma og ég reið framhjá kjallarahurðinni og hurðin var opin. Síðan þá hefur Blær verið frekar ósáttur við það að fara framhjá. Um daginn þá endaði ég bara inni í hesthúsi og réð ekki neitt við neitt. Rétt hafði það af, að beyja mig áður en við fórum inn um hurðina. Í gær hjálpaði pabbi mér hins vegar að komast framhjá og niður á hlað. Eftir það gekk allt mjög vel.

Endaði kvöldið á því að leyfa hrossunum að vera á Miðdalsveginum að bíta gras og voru þau mjög sátt við það.

Mamma og pabbi eru að spá í, að ná í Ragnar Bjarka núna á eftir svo það verður ábyggilega mikið fjör hjá okkur um helgina Svalur

Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir
Engin athugasemd

Bloggađ á nýjan leik

31. júlí 2008 klukkan 12:59
Ég held það sé komin tími til þess að fara blogga aftur.

Ég er eins og flestir vita að vinna hjá SS á Hvolsvelli. Þar er oft mikið fjör en stundum getur líka verið rólegt. Frábær starfsandi og skemmtilegt samstarfsfólk en það skiptir öllu eða mestu máli til þess að manni sjálfum líði vel í vinnunni.

Í gær fór hitinn upp úr öllu valdi. Það var hreinlega ólíft að hafa opna glugga því hitinn úti var yfir 27 gráðum og því var bara best, að mér fannst að hafa gluggan lokaðan og slökkt ljósin.

Heima í sveitinni var bara heyskapur en Valur og pabbi heyjuðu heimatúnið í Eyvindarholti í gær. Þeir urðu strax að keyra heim rúllurnar þar sem fuglinn fór strax að fara í þær og var búin að gera einhver göt á meðan við vorum í fjósinu. Milena kom í gærkvöldi strax eftir fjós með þrjá hesta frá sér sem hún ætlar að hafa í hagagöngu hjá pabba þangað til um miðjan október.

Ég gaf öllum hrossum frí í gær sökum veðurs en ég held að öllum hafi verið heitt í gær. Sótti bara beljurnar og var svo að skoppa á trampólíninu hennar mömmu. Mjög gaman.
Sigurrós Lilja Ragnarsdóttir
Engin athugasemd